![]() |
Litlabrú 2, 780 Höfn, GSM 867 1224 South East Iceland Birds Observatory, Litlubrú 2, 780 Höfn, Iceland
Sigurlaug Gissurardóttir formaður Umhverfisnefndar Hornafjarðar og Brynjúlfur Brynjólfsson við afhendingu umhverfisverðlauna Hornafjarðar í Nýheimum 9. febrúar 2007. Ljósmynd: Sigurður Mar Halldórsson
Umhverfisverðlaun Hornafjarðar fyrir árið 2006. Fuglaathugunarstöð Suðausturlands Verðlaunin eru veitt fyrir fyrir að safna gögnum og upplýsingum um fugla og vekja þannig athygli á sérkennum staðarins í náttúrufarslegu tilliti.
Fuglaathugunarstöð Suðausturlands er grundvölluð á áratuga athugunum á fari og hegðan fugla á Suðausturlandi og frumkvöðull þess starfs er Hálfdán Björnsson á Kvískerjum. Hálfdán hefur um áratugaskeið verið óþreytandi við að fylgjast með, skrá niður og miðla til annarra öllu því sem lítur að fuglum. Með þessu hefur hann vakið áhuga sér yngri manna á þessum áhugaverða þætti í náttúrufari Suðausturlands og hafa þeir, einkum félagarnir Björn Gísli Arnarson og Brynjúlfur Brynjólfsson beitt sér fyrir stofnun Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands til að halda starfinu áfram og vekja um leið athygli á þessum mikilvæga þætti í sérkennum staðarins.
|